En cours de chargement...
Illmögulegt hefði reynst að upplýsa þetta mál, sem við höfum kallað , ,Á hælum maraþonhlaupara", ef ekki hefði verið um einstaka samvinnu norrænna lögreglu- manna að ræða. Samvinnan felst í því að norræn lögreglustjóraembætti hafa dag- lega samband sín í milli og skiptast á um að senda menn á sínum vegum út um allan heim.
Í þessu tilviki var það sænski tengiliðurinn í Aþenu, sem jafnframt var sendifull- trúi í Búlgaríu, sem átti heiðurinn af því að hafin var rannsókn á málinu.
Greinarhöfundur starfar sem sérfræðingur við útlendingadeild rannsóknar- lögreglunnar (Kripos).
Deildin hefur fjögur meginverkefni með höndum: smygl á innflytjendum, fölsuð ferðaskilríki, fölsuð persónueinkenni og ólöglega atvinnu- þátttöku.