En cours de chargement...
Hún amma er orðin gömul, en þó er hún bæði falleg og vitur. Engin segir sögur eins og hún og margt hefur hún lært á langri ævi. Ein eign er henni kærust, en það er þurrkuð rós, sem hún geymir inni í sálmabókinni sinni.
Fyrir kemur að amma opnar sálmabókina og virðir rósina fyrir sér. Vöknar henni þá um augun og tárin falla á þurrkað blómið. Þá er eins og rósin gamla lifni, blöðin breiðist út og ilminn leggi um herbergið.
Amma verður ung á ný, glóbjört og brosandi, fögur stúlka á ástarfundi.
Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.