Jón Sigurðsson: Viðbúnaður - E-book - ePub

Note moyenne 
Páll Eggert Ólason - Jón Sigurðsson: Viðbúnaður.
"Saga hans er saga þjóðar hans og samtímis" segir í fyrsta af fimm bindum um ævisögu Jón Sigurðssonar sem fæddist þann 17. júní árið 1811.... Lire la suite
8,99 € E-book - ePub
Vous pouvez lire cet ebook sur les supports de lecture suivants :
Téléchargement immédiat
Dès validation de votre commande
Offrir maintenant
Ou planifier dans votre panier

Résumé

"Saga hans er saga þjóðar hans og samtímis" segir í fyrsta af fimm bindum um ævisögu Jón Sigurðssonar sem fæddist þann 17. júní árið 1811. Það bar snemma á gáfum og fróðleiksþorsta Jóns en hann fluttist ungur úr foreldrahúsum til að ljúka stúdentsprófi í Reykjavík og þaðan til Kaupmannahafnar til að leggja stund á háskólanám. Hér fá lesendur innsýn í æsku og uppvöxt Jóns á Hrafnseyri, þátttöku hans í félagsstörfum, persónulega hagi og félagslíf.
Dregin er upp lýsandi mynd af aðstæðum á Íslandi þess tíma og störfum Jóns í þágu þjóðfélagsmála. Jón Sigurðsson I-V er ævisaga þjóðarhetju og leiðtoga Íslands í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld. Ævisagan var upprunalega gefin út í fimm bindum af Hinu Íslenzka Þjóðvinafélagi í Reykjavík á árunum 1929-1933. Verkið er viðamikið og gefur innsýn í afdrifaríka ævi Jóns Sigurðssonar og sjálfstæðisbaráttuna við Dani.
Höfundur bókanna er Páll Eggert Ólason. Páll Eggert Ólason (1883-1949) var íslenskur doktor og prófessor í sagnfræði. Eftir stúdentsprófið lauk hann embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands og hlaut síðar doktorsnafnbót fyrir rit sitt um Jón Arason. Páll sinnti fjölbreyttum störfum í gegnum tíðina en þar má helst nefna stöðu bankastjóra Búnaðarbankans, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins og bæjarfulltrúa í Reykjavíkurborg.
Þekktastur er Páll þó fyrir fræða- og ritstörf sín sem skipuðu stóran sess á starfsferli hans. Hann var afkastamikill rithöfundur enda fróður um sögu Íslands og afar leikinn við heimildavinnu. Ritverk hans eru bæði yfirgripsmikil og efnisrík en meðal þeirra eru samantekt á Íslenzkum æviskrám, Ævisaga Jóns Sigurðssonar I-V og Menn og menntir siðaskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV.

Caractéristiques

  • Caractéristiques du format ePub
    • Pages
      478
    • Taille
      573 Ko
    • Protection num.
      Digital Watermarking

Avis libraires et clients

Avis audio

Écoutez ce qu'en disent nos libraires !

Souvent acheté ensemble

Vous aimerez aussi

Derniers produits consultés

8,99 €