Skemmtisigling sem snerist upp í andhverfu sína - E-book - ePub

Note moyenne 
Ýmsir Höfundar - Skemmtisigling sem snerist upp í andhverfu sína.
Hvernig gat þetta gerst, spurðu margir sig þegar fréttist af hörmulegu sjóslysi sem varð svo til uppi í landsteinum við Reykjavík í september... Lire la suite
1,99 € E-book - ePub
Vous pouvez lire cet ebook sur les supports de lecture suivants :
Téléchargement immédiat
Dès validation de votre commande
Offrir maintenant
Ou planifier dans votre panier

Résumé

Hvernig gat þetta gerst, spurðu margir sig þegar fréttist af hörmulegu sjóslysi sem varð svo til uppi í landsteinum við Reykjavík í september 2005. Skemmtibát, sem hafði verið á siglingu innan hafnarsvæðisins, var siglt á Skarfasker, sem er rúma 300 metra undan landi þar sem styst er, með þeim afleiðingum meðal annars að maður á fertugsaldri lést við ásiglinguna og fimmtug sambýliskona hans drukknaði eftir að bátnum hvolfdi er honum var siglt stórskemmdum frá skerinu.
Dómsmálið vakti mikla athygli auk þess að vekja upp sterkar tilfinningar, jafnvel hjá fólki sem tengdist ekki þeim sem létust á nokkurn hátt. Ástæðan var líkast til sú að skipstjóri og eigandi bátsins, sem var ölvaður þegar ásiglingin átti sér stað, neitaði að hafa verið við stjórnvöl bátsins þegar hann steytti á skerinu og sagði konuna, sem drukknaði eftir ásiglinguna, hafa verið við stýrið, en þessi framburður skipstjórans gekk þvert á niðurstöður rannsókna lögreglu og réttarmeinafræðings.
Þá hafði skipstjórinn ekki gripið til björgunarráðstafana af neinu tagi í kjölfar ásiglingarinnar heldur siglt bátnum frá skerinu, þó ekki stystu leið að landi, uns honum hvolfdi.

Caractéristiques

  • Caractéristiques du format ePub
    • Pages
      14
    • Taille
      20 Ko
    • Protection num.
      Digital Watermarking

Avis libraires et clients

Avis audio

Écoutez ce qu'en disent nos libraires !

Souvent acheté ensemble

Vous aimerez aussi

Derniers produits consultés

1,99 €