En cours de chargement...
Í Brennuvargnum ákveða Andrés og Kalli að leysa sjö stór brunamál sem hafa öll átt sér stað á Eikarvegi. Rannsókn lögreglu bendir til þess að þekktur glæpamaður komi við sögu en það vantar þó upp á sönnungargögn. Rannsóknarlögreglumaðurinn Henrik, sem býr á Eikarvegi og vann að málinu á sínum tíma, kemur Andrési og Kalla til aðstoðar við rannsóknina.
Í öskunni í brenndu húsi rannsóknarlögreglumannsins Madsen finnur Andrés gamlan málmkassa.
Þar er að finna fullt af gömlum skýrslum. Þetta eru óleyst mál sem Madsen hefur kannað en nú er hann dáinn.
Sögurnar í "Skýrsla X" fjalla um Andrés og Kalla vin hans, sem ákveða að taka nokkrar skýrslurnar í sínar eigin hendur og reyna að rannsaka og leysa gömlu sakamálin.
Peter Grønlund (f. 1970) er höfundur nokkurra þekktra og vinsælla bóka sem fjalla um undirmenningar og skuggahliðar í dönsku samfélagi.
Hann hefur meðal annars gefið út bækur um veggjakrot í Danmörku, ríkisfangelsið í Vridsløselille og ævisögu glæpamannsins Lonne.