En cours de chargement...
Carl Maria von Weber fæddist árið 1786 í Þýskalandi. Hann var tónskáld, hljómsveitarstjóri, píanisti og gítarleikari. Uppvaxtarár hans voru óstöðug þar sem hann flutti oft, en á hverjum stað sem hann bjó fékk hann tækifæri til að stunda tónlistarnám. Hann lauk ferli sínum í Lundúnum, þar er hann jarðaður árið 1826.
Serían fjallar um helstu tónsnillinga allt frá árunum 1525-1907. Hún er byggð á skrifum Theodórs Árnasonar sem var íslenskur tónlistarmaður.
Fjallað er um líf tónskálda og verk þeirra. Bókin kom fyrst út árið 1966.
Theodór Árnason fæddist 10. desember 1889. Hann ólst upp á Seyðisfirði þar sem hann lærði á á fiðlu sem barn. Hann starfaði sem hljómsveitarstjóri í kvikmyndahúsi í Winnipeg og lærði hljómlist í Kaupmannahöfn. Hann er Íslendingum þó þekktastur sem rithöfundur og þýðandi. Hann þýddi m.a. nokkur Grímsævintýri auk þess sem hann skrifaði um helstu tónsnillinga heimsins.